Arsenal þarf á sigri að halda í kvöld er liðið mætir BATE Borisov í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
BATE vann fyrri leik liðanna 1-0 í Hvíta-Rússlandi og fer seinni leikurinn fram í London í kvöld.
Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan en hjá Arsenal þá byrjar Mesut Özil í fyrsta skiptið í dágóðan tíma.
Arsenal: Cech, Lichtsteiner, Mustafi, Koscielny, Monreal, Guendouzi, Xhaka, Mkhitaryan, Ozil, Iwobi, Aubameyang
BATE: Scherbitski, Rios, Volkov, Filipenko, Filipovic, Baga, Dragun, Simovic, Milic, Skavysh, Stasevich