Ensk götublöð halda því fram að Jadon Sancho, kantmaður Borussia Dortmund sé efstur á óskalista félagsins í sumar.
Sancho er 18 ára gamall kantmaður sem kom til Dortmund frá Manchester City fyrir einu og hálfu ári síðan, hann hefur slegið í gegn í Þýskalandi.
Sancho hefur brotið sér leið inn í enska landsliðið og staðið sig með miklum ágætum, ensk blöð segja að Unied vilji tryggja sér starfskrafta hans í sumar.
Til að það geti gerst er því haldið fram að United verði að ná Meistaradeildarsæti, annars muni Sancho ekki hafa áhuga á því að koma.
Sancho gæti hugsað sér að koma aftur til Englands en Dortmund hefur hingað til haldið því fram að hann sé ekki til sölu.
Ensk blöð segja hins vegar að 100 milljóna punda tilboð muni verða til þess að Dortmun væri tilbúið að selja.