Jose Mourinho, fyrrum stjóri Manchester United, hefur nefnt liðin tvö sem hann telur líklegust til að vinna Meistaradeildina í ár.
Mourinho hefur sjálfur unnið keppnina tvisvar en hann er einn sigursælasti knattspyrnustjóri Evrópu.
Portúgalinn nefnir bæði Atletico Madrid og Juventus en þau spila einmitt í 16-liða úrslitum í kvöld.
Undanfarin þrjú ár hefur Real Madrid unnið keppnina en liðið er í töluverðri lægð þesa stundina.
,,Ég held að Juventus geti unnið Meistaradeildina því þeir eru með leikmann eins og Cristiano Ronaldo sem ræður úrslitum,“ sagði Mourinho.
,,Þeir eru mjög hungraðir en það væri ekki óvænt ef Atletico Madrid myndi vinna því metnaðurinn þar er mikill.“