City Football Group sem er fyrirtækið sem á Manchester City hefur keypt sitt sjöunda knattspyrnufélag, það nýjasta er í Kína.
Fyrirtækið hefur keypt Sichuan Jiuniu sem leikur í þriðju efstu deild í Kína.
Um er að ræða sjöunda félagið sem Sheik Mansour og hans menn eiga en einnig eiga þeir félög í New York Ástralíu, Japan, Spáni og Úrúgvæ.
Fyrsta félagið sem þeir keyptu var Manchester City og síðan hafa þeir verið að stækka og stækka.
Sichuan Jiuniu á 27 þúsund manna heimavöll en eigendurnir ætla að reyna að koma liðinu upp í efstu deild.