Leikmenn Chelsea á Englandi eru að fá nóg af stöðu félagsins undir stjórn Maurizio Sarri.
Enskir miðlar fjalla um málið í kvöld en Chelsea hefur alls ekki verið upp á sitt besta í undanförnum leikjum.
Sjálfstraustið er lítið í herbúðum liðsins þessa stundina og eru sumir leikmenn Chelsea sem kenna Sarri um það.
Þeir telja að hann sé ekki rétti maðurinn til að snúa gengi liðsins við og mögulega vinna titla á Stamford Bridge.
Sarri er mjög þrjóskur maður en hann heldur sig við sama leikstíl þó að hlutirnir séu ekki að ganga upp.
Hann virðist einnig treysta sömu leikmönnunum í hverri viku þrátt fyrir að þeir hafi staðið sig illa í nokkrum leikjum í röð.
Eldri leikmenn Chelsea eru farnir að efast um hæfni Sarri en starf hans er svo sannarlega í hættu þessa stundina.