Nani, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur skrifað undir samning við lið Orlando City.
Þetta var staðfest í dag en Nani gerir þriggja ára samning við Orlando sem leikur í bandarísku MLS deildinni.
Ekkert kaupverð er gefið upp að svo stöddu en Nani kemur til liðsins frá Sporting Lisbon í Portúgal.
Nani er 32 ára gamall en hann hefur nú leikið fyrir sex lið á ansi skrautlegum ferli.
Hann er þekktastur fyrir tíma sinn hjá United þar sem hann vann ensku úrvalsdeildina fjórum sinnum.