Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal, mun ganga í raðir Juventus næsta sumar á frjálsri sölu.
Arsenal framlengdi ekki samning leikmannsins sem hefur spilað með liðinu í heil 11 ár.
Ian Rush, fyrrum landsliðsmaður Wales, hefur útskýrt það af hverju Ramsey ákvað að taka skrefið til Ítalíu.
,,Hann er frábær leikmaður og heldur flestu fyrir sig sjálfan. Hann er fjölskyldumaður,“ sagði Rush.
,,Það skiptir Juventus miklu máli hvernig menn haga sér utan vallar og hann er mjög góð manneskja sem hentar liðinu.“
,,Af hverju Juventus? Ég ræddi við hann fyrir nokkrum vikum og hann hefur alltaf verið sannfærður um þetta val.“
,,Hann vill vinna bikara og Juventus hefur alltaf verið númer eitt þegar kemur að því. Hann trúir því að hann geti unnið þar, frekar en annars staðar.“