Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona hefur bundið enda á sögusagnir um framtíð sína. Hann hefur framlengt samning sinn.
Valverde var að verða samningslaus í sumar en hefur nú framlengt samning sinn um eitt ár, með möguleika á auka ári.
Valverdet tók við Barcelona sumarið 2017 þegar Luis Enrique lét af störfum, Valverde vann deildina og bikarinn á fyrstu leiktíð.
Barcelona er á toppi La Liga í dag og líklegt er að liðið vinni deildina, þá er liðið í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.