Manchester United verður án lykilmanna á mánudaginn er liðið spilar við Chelsea í enska bikarnum.
Ljóst er að þeir Anthony Martial og Jesse Lingard spila ekki í leiknum en þeir eru að glíma við meiðsli.
Enskir miðlar búast við þvi að Solskjær gefi ungum leikmönnum tækifæri í leiknum við Chelsea.
Þeir Tahith Chong og Angel Gomes gætu mögulega fengið tækifæri á miðju liðsins.
Það eru þó nokkur byrjunarlið sem koma til greina og er Solskjær með nokkra möguleika.
Hér má sjá hvernig United gæti stillt upp.