Víkingur Ó. og FH hafa komist að samkomulagi um að Grétar Snær Gunnarsson gangi til liðs við Víking Ó. en hann hefur gert tveggja ára samning við félagið.
Grétar var á láni hjá HB Þórshöfn í Færeyjum á seinasta tímabili og varð meistari með liðinu þar í landi.
Grétar er 22 ára gamall miðjumaður en hann hefur spilað 18 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Grétar mun spila sinn fyrsta leik með Víkingum í kvöld þegar liðið mætir Njarðvík í Lengjubikarnum.