Idrissa Gueye, leikmaður Everton, var á óskalista Paris Saint-Germain sem vildi fá hann í janúarglugganum.
PSG reyndi ítrekað að fá miðjumanninn í sínar raðir en Everton hafði ekki áhuga á að selja leikmanninn.
Hann hefur þó ekki gefið upp vonina og er staðráðinn í því að komast til félagsins einn daginn.
,,Þetta er draumur sem því miður rættist ekki. Allir leikmenn vilja spila fyrir bestu liðin, spila í Meistaradeildinni,“ sagði Gueye.
,,Það var heiður að heyra af áhuga PSG og nú veit ég það að ég get hrifið félög í þessum klassa, að ég geti náð á toppinn og samið við topplið í Evrópu.“
,,Ég mun nú leggja mig enn meira fram svo þeir reyni aftur við mig. Kannski er þetta ekki búið.“