Phil Jones, leikmaður Manchester United, viðurkennir að félagið hafi verið aðhlátursefni í byrjun tímabils.
United gekk ekki vel á síðasta ári er Portúgalinn Jose Mourinho var við stjórnvölin.
Gengið hefur breyst mikið undanfarið eftir að Ole Gunnar Solskjær tók við. Liðið situr nú í fjórða sæti deildarinnar.
,,Allir munu taka okkur alvarlega núna. Við gætum hafa verið aðhlátursefni í byrjun tímabils en ekki núna,“ sagði Jones.
,,Við höfum sannað það í síðustu 10-12 leikjum, við erum að bæta okkur og erum að verða betri.“
,,Þetta var erfitt fyrir alla, félagið, stuðningsmenn og alla aðra. Þetta snýst um að verða sterkari og sjá það út.“
,,Við höfum ekki afrekað neitt ennþá en við erum svo sannarlega að fara í rétta átt.“