Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, er svo sannarlega ekki vinsæll hjá stuðningsmönnum Newcastle í dag.
Ferdinand ræddi um eiganda Newcastle, Mike Ashley, fyrir leik gegn Chelsea í úrvalsdeildinni.
Stuðningsmenn vilja sjá Ashley yfirgefa félagið en hann neitar að hjálpa Rafael Benitez með því að kaupa leikmenn.
Ferdinand þekkir Ashley aðeins en hann selur vörumerki sitt ‘FIVE’ í gegnum Sports Direct sem er í eigu Ashley.
,,Ég þekki hann ekki einu sinni það vel en ég mun kynnast honum,“ sagði Ferdinand við BT Sport.
,,Vandamálið sem ég er með – það tengist því ekkert að ég sé að vinna með hans fyrirtæki – er að þegar þeir féllu þá eyddi hann 50 milljónum punda af eigin peningum til að koma þeim upp.“
,,Þeir ættu að þakka honum. Ef þú horfir lengra fram í tímann þá eyddi Sunderland 1,2 milljónum í Championship-deildinni.“
,,Hann gerði þetta til að koma þeim aftur upp. Og þeir mega líka þakka honum fyrir að fá Rafa Benitez inn því þeir eru heppnir að eiga hann að.“