Dele Alli, leikmaður Tottenham á Englandi, komst á blað um helgina er liðið vann Newcastle 2-1.
Alli skoraði sigurmark Tottenham í leiknum en um var að ræða fyrsta leik liðsins í úrvalsdeildinni í sumar.
Fagn Alli vakti mikla athygli og hafa margir samherjar hans reynt að gera það sama enda líta þessar handahreyfingar út fyrir að vera ansi einfaldar.
Það hefur þó engum tekist að gera það sama og hefur hann sjálfur afar gaman að því.
Það er erfitt að útskýra hvað það er sem Alli gerir nákvæmlega en við skorum á ykkur að reyna!
Myndir af Alli gera fagnið og liðsfélögum hans reyna má sjá hér fyrir neðan.
Am I the only one that’s still trying to figure out how Dele Alli managed to do this with his hand?.. pic.twitter.com/gp2C1RyeWQ
— Mike Sanz (@mikesanz19) 13 August 2018