Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður Everton er duglegur að minna Wayne Rooney liðsfélaga sinn í Everton á leik Íslands og Englands á Evrópumótinu í Frakklandi sumarið 2016.
Ísland vann þá frækinn 2-1 sigur á Englandi í 16 liða úrslitum, úrslit sem ekki nokkur maður átti von á, sérstaklega í Englandi.
Gylfi segir frá þessu í þættinum Fyrir Ísland sem Guðmundur Benediktsson stýrir og hefst á Stöð2 síðar á mánuðinum.
,,Þeir eru ekkert búnir að gleyma leiknum, ég minni Rooney reglulega á hann,“ sagi Gylfi við Gumma Ben.
Rooney skoraði í leiknum gegn Íslandi úr vítaspyrnu en það dugði ekki til.
23.apríl á Stöð2 #FyrirÍsland#RoadToRussia pic.twitter.com/J8YxFVvDNX
— Gummi Ben (@GummiBen) April 4, 2018