Hræðilegt þyrsluslys átti sér stað í Leicester í október þar sem eigandi félagsins og fjórir aðrir létust.
Þyrlan var að taka á loft af King Power vellinum eftir leik sem Vichai Srivaddhanaprabha var mættur á.
Iðulega tók hann þyrluna heim af leiknum og eins og venjulega lenti hún á miðjum vellinum. Nú hefur komið í ljós hvað orsakaði það að þyrlan hrapaði til jarðar rétt eftir flugtak.
Ástæðan var bilun í stjórnunartækjum þyrlunnar, samband frá stjórntæki aftur í þyril á stélinu klikkaði.
Flugmaðurinn missti því stjórn á vélinni með þeim hræðilegu afleiðingum að hún féll til jarðar.
Vichai Srivaddhanaprabha, eignandi og stjórnarformaður Leicester City, og fjórir aðrir létust í slysinu sem var mikið áfall fyrir alla í félaginu og í borginni.
Vichai Srivaddhanaprabha lést ásamt tveimur aðstoðarmönnum sínum og þeim sem flugu vélinni.