Miðjumaðurinn Björn Daníel Sverrisson hefur gert samning við lið FH í Pepsi-deild karla.
Lengi hefur verið rætt um komu leikmannsins aftur heim en hann hefur leikið með AGF í Danmörku síðustu ár.
Björn spilaði með meistaraflokk FH frá 2008 til 2013 en samdi svo við Viking í Noregi þar sem hann stoppaði í tvö ár.
Hann missti svo sæti sitt í liði Viking og var seldur til AGF þar sem hlutirnir gengu ekki alveg upp.
Hann mun nú spila hér heima næsta sumar en það var uppeldisfélagið FH sem hafði betur í baráttunni.
Björn er 28 ára gamall og á að baki átta landsleiki fyrir Ísland sem og leiki fyrir yngri landsliðin.