Breiðablik hefur fengið til sín miðjumanninn Kwame Quee en hann kemur til liðsins frá Víkingi Ólafsvík.
Þetta staðfesti félagið í dag en þessi 22 ára gamli leikmaður stóð sig vel með Víkingum í sumar.
Hann lék með Víkingum í tvö tímabil og skoraði 11 mörk fyrir liðið í Inkasso-deildinni á síðustu leiktíð.
Hann gerir tveggja ára samning við Breiðablik en félagið missti Gísla Eyjólfsson til Svíþjóðar á dögunum.
Kwame ætti að hjálpa liðinu með þau mál en hann getur leyst nokkrar stöður framar á vellinum.