Lesendur UEFA fengu að velja besta lið allra tíma í Meistardeildinni og liðið er áhugavert.
Þarna má finna marga magnaða leikmenn en allir hafa þeir unnið þessa bestu keppni í heimi.
Þarna má finna Lionel Messi, Cristiano Ronaldo og Steven Gerrard.
Leikmenn sem hafa komið fyrir hjá Real Madrid og Barcelona eru í stóru hlutverki.
Liðið er hér að neðan.