Það var Mohamed Salah sem tryggði Liverpool farseðilinn í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í kvöld.
Liverpool vann 1-0 sigur á Napoli á Anfield og skoraði Salah eina mark leiksins á 34. mínútu leiksins.
Það mark reyndist nóg til að koma Liverpool áfram en Napoli er nú á leið í Evrópudeildina.
Mark Salah var frábært en hann fór illa með vörn gestanna og skoraði framhjá David Ospina.
Kalidou Koulibaly er talinn einn öflugasti varnarmaður heims en hann lét Salah plata sig illa í markinu.