Ralph Hasenhuttl var á dögunum ráðinn nýr stjóri Southampton á Englandi en hann kemur til félagsins frá Þýskalandi.
Hasenhuttl náði góði árangri með RB Leipzig í heimalandinu en fær nú verðugt verkefni á Englandi.
Southampton hefur verið í mikilli lægð undanfarið og var Mark Hughes rekinn eftir slæma byrjun á leiktíðinni. Hasenhuttl er þó bjartsýnn fyrir komandi átök.
Þjóðverjinn hugsaði um farþegaskipið Titanic áður en hann kom til Englands. Titanic sökk árið 1912 eftir að hafa siglt utan í borgarísjaka.
,,Ég var að hugsa um Titanic þegar ég var að koma hingað og ég vona að ég klessi ekki á fyrsta ísjaka sem ég sé,“ sagði Hasenhuttl.
,,Ég horfði fram á veginn og andrúmsloftið var mjög gott, ég talaði við stjórnarformanninn Ralph Krueger og yfirmann knattspyrnumála Ross Wilson, ákvörðunin var ekki erfið.“
,,Ég átti nokkur góð ár í Þýskalandi og þegar ég yfirgaf Leipzig í sumar þá hugsaði ég um næsta skref. Ég vildi koma í nýtt lið og læra nýtt tungumál og þróa minn persónuleika.“
,,Það er ástæðan fyrir því að ég ákvað að koma hingað til Southampton.“