Neymar, leikmaður Paris Saint-Germain, lék með liðinu í kvöld gegn Liverpool í Meistaradeildinni.
Neymar og félagar unnu 2-1 sigur á þeim ensku og eru í góðri stöðu fyrir lokaumferð riðlakeppninnar.
Brassinn skoraði annað mark PSG í leiknum en Juan Bernat hafði komið liðinu yfir.
Það er óhætt að segja að Neymar hafi ekki sýnt Liverpool neina virðingu er hann reyndi að tefja leikinn undir lokin.
Neymar bauð upp á svokallað ‘rainbow flick’ í uppbótartíma og fór ansi illa með Xherdan Shaqiri.
Sjón er sögu ríkari.
Neymar is disrespectful ??????? pic.twitter.com/cH5ZcEoqH5
— Thabiso (@teekay10107) 28 November 2018