Marcelino, stjóri Valencia, kallar eftir því að myndbandstækning VAR verði notuð í Meistaradeildinni.
Marcelino segir þetta eftir 1-0 sigur Manchester United á Young Boys í gær en sigur United tryggði liðinu í 16-liða úrslit.
Marouane Fellaini skoraði sigurmark United í blálokin en hann notaði þá hendina til að ná stjórn á boltanum innan teigs.
Valencia hefði átt möguleika að komast áfram ef leikurinn hefði endað með markalausu jafntefli.
,,Þetta er það sem gerir fótboltann svo frábæran,“ sagði Marcelino á blaðamannafundi.
,,Meistaradeildin er sérstök keppni, frábær keppni og smáatriðin í fótboltanum gera gæfumuninn.“
,,Mér hefur verið sagt frá atvikinu og ég held að svo stór keppni þurfi að taka upp VAR.“