Átta lið eru nú búin að tryggja sér þátttöku í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar sem hefst á næsta ári.
Næst síðasta umferð riðlakeppninnar er spiluð í þessari viku en þrátt fyrir það eru mörg lið komin áfram.
Fyrri umferðin fór fram í kvöld en átta leikir fóru fram. Aðrir átta leikir eru svo á dagskrá á morgun.
Manchester United, Ajax, Bayern Munchen, Roma, Manchester City, Juventus, Real Madrid og Barcelona eru öll komin áfram.
Barcelona er búið að tryggja sér sæti í næstu umferð fyrir leik gegn PSV Eindhoven á morgun.
Hér má sjá hvernig þetta lítur út allt saman.