England görsamlega gekk frá Danmörku í leik hjá U21 árs landsliðum í kvöld.
England er að koma upp með sterkan árgang og vann öruggan 1-5 sigur.
Markið sem Dominic Solanke framherji Liverpool skoraði með hælnum stóð hins vegar upp úr.
Solanke fékk boltann út í teiginn og í stað þess að snúa eins og flestir hefðu gert, bombaði hann boltanum inn með hælnum.
Markið glæsilega má sjá hér að neðan.