Jón Guðni Fjóluson, miðvörður íslenska landsliðsins verður ekki með liðinu gegn Katar í kvöld. Fótbolti.net segir frá.
Jón Guðni hefur haldið heim til Rússlands þar sem veikindi eru í fjölskyldu hans.
Þessi öflugi miðvörður lék vel í tapi gegn Belgíu í síðustu viku og var búist við að hann myndi byrja aftur í kvöld.
Jón Guðni gekk í raðir Krasnodar í ár en áður lék hann í Svíþjóð með Norköpping.
Jón Guðni er 29 ára gamall en hann lék með Fram á Íslandi áður en hann hélt út.