Er Jose Mourinho rétti maðurinn fyrir Manchester United? Það gæti verið að mati Juan Sebastian Veron, fyrrum leikmanns liðsins.
Mourinho hefur mikið verið gagnrýndur á þessu tímabili og eru sumir sem vilja sjá hann fá sparkið.
Mourinho hefur verið hjá félaginu í þrjú ár en Veron telur að hann þurfi meiri tíma. Liðið hefur ekki verið það sama eftir brottför Sir Alex Ferguson árið 2013.
,,Mourinho er frábær þjálfari að mínu mati. Ég held hins vegar að United hafi verið í miklum vandræðum með að finna arftaka Ferguson,“ sagði Veron.
,,Mourinho er frábær stjóri og er að gera sitt besta. Kannski er hann sá rétti í starfið.“
,,En eftir allt sem Ferguson afrekaði hjá félaginu þá þarf hann tíma til að koma sinni hugmyndafræði í gang.“
,,Brottför Ferguson hafði mjög slæm áhrif á liðið. Þeir hafa ekki fundið réttu leiðina og hafa breytt mikið til.“