AC Milan á Ítalíu heimtar að Chelsea lækki verðmiðann á miðjumanninum Tiemoue Bakayoko.
Football Italia greinir frá þessu en Bakayoko er þessa stundina í láni hjá ítalska félaginu.
Bakayoko hefur ekki þótt standast væntingar á Ítalíu og spilaði þá einnig illa með Chelsea í fyrra.
Milan má kaupa Bakayoko næsta sumar fyrir 40 milljónir evra, sama verð og Chelsea borgaði Monaco.
Ítalska félagið vill þó að Chelsea lækki verðmiðann um 15 milljónir evra og er til í að borga 25 milljónir fyrir miðjumanninn.