Miðjumaðurinn Guðjón Pétur Lýðsson hefur skrifað undir samning við lið KA í Pepsi-deild karla. Samningurinn er til þriggja ára.
Þetta var staðfest í kvöld en Guðjón yfirgaf Íslandsmeistara Val á dögunum og var frjáls sinna ferða.
Nokkur lið höfðu áhuga á Guðjóni en hann mætti til að mynda á æfingar hjá sínu fyrrum félagi Breiðabliki nýlega.
KA hafði hins vegar betur í baráttunni um Guðjón sem á að baki leiki fyrir lið eins og Breiðablik, Stjörnuna og Val. Hann lék þá með Helsingborg í Svíþjóð árið 2011.
Guðjón er 31 árs gamall í dag en hann er fyrsti leikmaður sem Óli Stefán Flóventsson fær til félagsins.