Hólmbert Aron Friðjónsson átti frábært tímabil með liði Aalesund í Noregi sem spilar í næst efstu deild.
Hólmbert hefur staðið sig afar vel í Noregi síðan hann kom til félagsins frá Stjörnunni fyrr á þessu ári.
Þessi 25 ára gamli framherji var í dag valinn besti leikmaður tímabilsins en samtök íþróttafréttamanna sáu um að velja.
Hólmbert skoraði 19 mörk fyrir Aalesund sem er á leið í umspil fyrir laust sæti í efstu deild Noregs.
Hólmbert lagði einnig upp önnur fimm á liðsfélaga sína og skoraði aðeins einn leikmaður fleiri mörk eða Tommy Hoiland hjá Viking sem gerði 21 mark.