Það er útlit fyrir það að framherjinn Danny Welbeck sé illa meiddur en hann byrjaði gegn Sporting í kvöld.
Welbeck og félagar í Arsenal fengu Sporting í heimsókn í Evrópudeildinni en staðan er markalaus í hálfleik.
Welbeck entist ekki lengi í leiknum en hann var borinn af velli og kom Pierre-Emerick Aubameyang inná í hans stað.
Samkvæmt fregnum er Welbeck líklega ökklabrotinn en hann þurfti á súrefnisgrímu að halda.
Mynd af ökkla Welbeck í kvöld má sjá hér fyrir neðan.