Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
——–
Antonio Conte neitar að hitta Chelsea og ætlar að fara með það fyrir dóm. (Sky)
Manchester United mun bjóða Anthony Martial 190 þúsund pund á viku og fimm ára samning. (Sun)
Scott Parker gæti tekið við Fulham. (Telegraph)
Chelsea og FC Bayern hafa áhuga á Nabil Fekikr leikmanni Lyon. (Star)
Manchester United hefur áhuga á Joachim Andersen 22 ára varnarmanni Sampdoria. (Mirror)
Javi Gracia er að framlengja samning sinn við Watford. (Times)
Inter Milan vill 100 milljónir punda fyrir Milan Skriniar sem Barcelona, Manchester United og Real Madrid hafa áhuga á. (Sun)