Alexis Sanchez, leikmaður Manchester United, hefur ekki þótt standast væntingar hjá félaginu.
Sanchez gekk í raðir United í janúar frá Arsenal en hann var lengi einn allra besti leikmaður Lundúnarliðsins.
Arsene Wenger, fyrrum stjóri Sanchez hjá Arsenal, hefur nú tjáð sig um erfiðleika leikmannsins.
,,Ég trúi því að hann sé búinn að tapa sjálfstraustinu,“ sagði Wenger við beIN Sports.
,,Þessir leikmenn eru viðkvæmastir þegar þeir tapa sjálfstraustinu því þeirra leikur snýst um að taka af skarið en hann hefur hægt og rólega tapað því.“
,,Síðan í byrjun tímabils hefur hann verið kraftmikill og fullur af orku en hann hefur misst það líka.“
,,Hann snýr nú ferskari til baka því Jose Mourinho ákvað að skilja hann eftir heima í smá tíma.“