fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433

Garðar Gunnlaugsson hættur í ÍA og ætlar að spila í Reykjavík

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 24. október 2018 19:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnufélag ÍA og Garðar Bergmann Gunnlaugsson hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að endurnýja ekki samstarf milli aðila þar sem samningur Garðars við félagið rennur út um næstu mánaðarmót.

Garðar Bergmann Gunnlaugsson hóf feril sinn í meistaraflokki karla 2001 þegar hann varð Íslandsmeistari með ÍA og bikarmeistari 2003 þegar hann skoraði sigurmark gegn FH í úrslitaleik. Hann spilaði einnig í nokkur ár með Val og var í atvinnumennskunni þar sem hann spilaði meðal annars með Norrköping í Svíþjóð og CSKA Sofíu í Búlgaríu.

Á ferli sínum með ÍA spilaði Garðar 301 leik og skoraði 132 mörk. Hann varð markakóngur Pepsi-deildar karla 2016, fyrsti Skagamaðurinn til að gera það í 15 ár. Hann á að baki glæstan feril þar sem hann hefur verið góður og traustur liðsmaður og skorað mörg mikilvæg mörkin.

„Eftir miklar vangaveltur höfum ég og minn ástkæri klúbbur, ÍA, ákveðið að nú skilja leiðir. Vegna vinnu þarf ég að flytjast búferlum til Reykjavíkur og tel ég það henta mun betur, vinnulega, fótboltalega og fjölskyldulega að ég stundi mína knattspyrnuiðkun í Reykjavík eða nágrenni. Mig langar að þakka ÍA og öllum sem koma að klúbbnum fyrir ótrúleg ár. Betri liðsfélaga er erfitt að finna og mun ég sakna þeirra mikið. Stuðningsmönnum ÍA vill ég svo færa sérstakar þakkir fyrir að hafa staðið við bakið á mér öll þessi ár,“ sagði Garðar í samtali við heimasíðu Knattspyrnufélags ÍA.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United