ÍBV hefur skrifað undir tveggja ára samning við Guðmund Magnússon en hann kemur til félagsins frá Fram.
Fram missir þar fyrirliða sinn sem skoraði 22 mörk í deild og bikar á síðustu leiktíð.
Pedro Hipólito sem hætti hjá Fram og tók við ÍBV á dögunum er þarna að sækja leikmann sem hann þekkir vel.
Yfirlýsing ÍBV:
Guðmundur Magnússon skrifaði undir tveggja ára samning við ÍBV nú um helgina.
Guðmundur er 27 ára sóknarmaður og kemur frá uppeldisfélaginu sínu Fram. Hann skoraði 22 mörk í deild og bikar fyrir Fram á síðasta tímabili.
ÍBV býður Guðmund og hans fjölskyldu velkomin til Vestmannaeyja.