Stuðningsmenn Chelsea létu Jose Mourinho, stjóra Manchester United, heyra það á Stamford Bridge í dag.
Chelsea og United skildu jöfn, 2-2 í ensku úrvalsdeildinni en jöfnunarmark Chelsea kom í uppbótartíma.
Eftir jöfnunarmarkið sungu stuðningsmenn Chelsea illa um Mourinho eða ‘Farðu til fjandans, Mourinho.’
Portúgalinn þekkir vel til Chelsea en hann vann þrjá deildarmeistaratitla með félagið á sínum tíma.
Hann hefur alltaf verið vinsæll á Stamford Bridge en einhverjir fyrirgefa honum ekki fyrir að taka við United.
Mourinho svaraði fyrir sig eftir leikinn í dag og sýndi stuðningsmönnum þrjá putta. Einn fyrir hvern deildarmeistaratitil sem hann hefur unnið með Chelsea.
Mynd af því má sjá hér.