Víðir Þorvarðarson skrifaði undir tveggja ára samning við ÍBV nú á dögunum. Víðir kom aftur heim í lok júlí og kláraði tímabilið með liðinu sem endaði deildina í 6.sæti.
Víðir ólst upp hjá ÍBV en hélt til Reykjavíkur þar sem hann lék með Fylki og Þrótti.
Hann snéri svo aftur heim til Eyja í sumar og átti ágætis spretti í liði ÍBV.
ÍBV réð Pedro Hipólito til starfa á dögunum en fregnir um framleningu Víðis eru fyrstu fréttirnar af leikmannamálum félagsins.