Kanye West er einn frægasti tónlistarmaður seinni tíma og hefur mikið farið fyrir honum í mörg ár.
Síðustu ár hefur Kanye einnig verið að framleiða skó með Adidas, sem seljast dýrum dómi.
Þá er West harður stuðningsmaður Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.
West er einnig stuðningsmaður Manchester United en félagið birti mynd af honum á Instagram í dag.
Þar er hann í treyju frá félaginu en rapparinn er giftur Kim Kardashian.