Ásmundur Arnarsson mun á nýja leik taka við þjálfun Fjölnis, þetta fullyrðir Hjörvar Hafliðason.
Ásmundur stýrði kvennaliði Augnabliks til sigur í 2. deild kvenna í sumar auk þess að þjálfa yngri flokka Breiðabliks.
Ásmundur þekkir vel til í Grafarvoginu en þar var hann frá 2005 til ársins 2011.
Hann hefur síðan þá þjálfað Fylki, ÍBV og Fram áður en hann fór í Kópavoginn.
Fjölnir féll úr Pepsi deild karla í sumar og eftir það lét Ólafur Páll Snorrason af störfum.
Skúbb frá Doc. Ási Arnars tekur aftur við Fjölni (staðfest) pic.twitter.com/nCPSR3KZ5v
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) October 10, 2018