Enskir fjölmiðlar eru duglegir að fjalla um samband Paul Pogba og Jose Mourinho hjá Manchester United.
Sagt er að allt sé í steik en miðað við Didier Deschamps, þjálfara franska landsliðsins þá eru það ýkjur.
Pogba hefur svo bætt orð í belg og miðað við það þá ætlar hann ekki burt frá liðinu.
,,Ég er ekki saddur, ég er hungraður eftir sigurinn á HM,“ sagði Pogba við franska fjölmiðla.
,,Ég ætla að vinna ensku úrvalsdeildina, Meistaradeildina, EM og verða einn sá besti í heimi.“
,,Ég vil skrifa mig í sögu fótboltans, ég þarf að gera meira og skora fleiri mörk.“