Það berast góð tíðindi af Aroni Jóhannsynni, framherja Werder Bremen en hann er að snúa til baka.
Þessi öflugi framherji hefur verið að glíma við meiðsli um langt skeið og ekki verið með á þessu tímabili.
Aron hefur verið einstaklega óheppinn með meiðsli síðustu ár en hann kom inn af krafti í Bremen á síðustu leiktíð.
Aron er byrjaður að æfa á grasi og ætti að geta byrjað að taka þátt í æfingum liðsins innan tíðar.
Aron er íslenskur framherji sem fæddist í Bandaríkjunum og kaus að spila fyrir Bandaríkin fremur en Ísland.
He’s back! ?@aronjo20 is completing some intensive individual training today ?#werder pic.twitter.com/BZlnXYfG9u
— SV Werder Bremen EN (@werderbremen_en) October 10, 2018