fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433

Telur að Erik Hamren hafi ekki valið sinn fyrsta landsliðshóp – ,,Ég var mjög ósáttur við margt „

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 3. október 2018 13:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals spáir því að miklir erfiðleikar verði hjá íslenska karlalandsliðinu næstu árin. Þetta kemur fram í viðtali við RÚV:

Ólafur stýrði landsliðinu á árum áður en þar tók hann inn unga leikmenn sem bera liðið uppi í dag.

Lars Lagerback og síðan Heimir Hallgrímsson tóku við góðu búi frá Ólafi sem skilaði liðinu inn á EM og HM.

Á föstudag mun Erik Hamren velja sinn annan landsliðshóp en hann fékk útreið í sínu fyrsta verkefni. Ólafur telur að Hamren hafi ekki valið hóp sinn fyrir leikina gegn Sviss og Belgíu.

„Auðvitað þarf að yngja þetta upp, ég vil meina það. Ég var mjög ósáttur við margt sem var valið í þessa tvo leiki. Enda held ég að hann hafi ekki valið það, þessi Hamrén, það getur ekki verið,“ sagði Ólafur við RÚV.

Ætla má þá að Freyr Alexandersson, aðstoðarþjálfari Hamren hafi valið hópinn ef marka má orð Ólafs.

„Það hafa aðrir menn valið þetta fyrir hann. Af því að hann var ráðinn landsliðsþjálfari þegar voru tíu dagar í leik, hann þarf að fá einhverja aðstoð til að velja leikmennina því hann þekkir það ekki sjálfur.“

„En ég held að hann eigi eftir að setja sinn svip á þetta og vonandi verður það gott.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar

Leggur til að United ráði Roy Keane til starfa í sumar
433Sport
Í gær

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum

Breytingar á leikstöðum í Bestu deildinni – FH spilar heimaleik á Ásvöllum