fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433

Sigurður Lárusson látinn

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 5. janúar 2018 11:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Lárusson fyrrum knattspyrnukappi og þjálfari er látinn 63 ára að aldri. Með Sigurði er genginn mikill sómamaður sem markaði djúp spor í knattspyrnunni á Akranesi. Hann var leikmaður ÍA á árunum 1979-1988 og einn lykilleikmaður þess á þeim tíma og lék alls 295 leiki fyrir félagið. Hann var fyrirliði liðsins lengstan þess tíma sem hann lék með því og á þeim tíma leiddi hann liðið til tveggja Íslandsmeistaratitla 1983 og 1984 og fjögurra bikarmeistaratitla 1982,1983,1984,1986.

Þessi tími er einn sigursælasti í sögu ÍA og á þessum tíma náðist sá einstæði árangur að vinna deild og bikar tvö ár í röð. Það er eina skiptið sem slíkt hefur tekist í íslenskri knattspyrnu. Hann tók við þjálfun meistaraflokks ÍA 1988 og stýrði honum tvö keppnistímabil og var spilandi þjálfari hluta af fyrra árinu. Sigurður lék 11 landsleiki á árunum 1981- 1984.

Sigurður var eftirminnilegur á leikvellinum. Hann bjó yfir mörgum af besti kostum góðs leikmanns og féll vel inn í leikstíl Akranesliðsins. Hann var metnaðarfullur og áræðin leikmaður. Eins var hann dugnaðarforkur með gott keppnisskap og gaf yfirleitt allt sitt í leikina og uppskar eftir því.

Sigurður var fæddur á Akureyri 26 júní 1954 og ól allan sinn aldur þar utan áranna á Akranesi. Hann lék með Akureyrarliðinu í fyrstu og síðan Þór þar til hann skipti yfir til ÍA. Eftir að hann flutti á ný norður þjálfaði hann ýmis lið á því svæði um árabil. Eiginkona Sigurðar er Valdís Þorvaldsdóttir og börn þeirra eru fjögur Lárus Orri fæddur 1973, Sigurlína Dögg fædd 1978, Kristján Örn fæddur 1980 og Aldís Marta fædd 1993.

,,Knattspyrnufélag ÍA þakkar Sigurði af heilum hug hans þátt í að setja knattspyrnustarfið á Akranesi á þann stall sem það er. Valdísi, börnum þeirra, barnabörnum sem og öðrum aðstandendum eru sendar hugheildar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sigurðar Lárussonar,“ segir á heimasíðu ÍA.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt

KSÍ segir samtalið um Laugardalsvöll jákvætt
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ólafur Karl Finsen orðinn leikmaður Vals

Ólafur Karl Finsen orðinn leikmaður Vals
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fluttur með hraði á sjúkrahús með verk fyrir brjósti

Fluttur með hraði á sjúkrahús með verk fyrir brjósti
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá

Toddi fundaði með Infantino í París – Þessi mál voru á dagskrá