Knattspyrnusumarið á Íslandi er á enda um helgina þegar Pepsi deild karla lýkur með heillri umferð.
Keflavík og Fjölnir eru fallin úr deildinni en Valur verður Íslandsmeistari um helgina með sigri gegn Keflavík.
Breiðablik og Stjarnan eru á eftir Val og þurfa að treysta á hið ómögulega, að Keflavík vinni Val.
Leifur Grímsson, er einn af þeim mönnum sem fylgist hvað best með Pepsi deildinni.
Hann birti á Twitter samantekt um það hverjir hafa oftast verið teknir af velli í deildinni.
Steinþór Freyr Þorsteinsson er með 100 prósent árangur þar, ef hann byrar þá er Steinþór tekinn af velli.
Aron Bjarnasn kantmaður Blika fær oftar en ekki að klára þá leiki sem hann byrjar.
Why me?? Þessir leikmenn eru oftast teknir af velli í @Pepsideildin #fotboltinet pic.twitter.com/H8YXN7AX9J
— Leifur Grímsson (@lgrims) September 27, 2018