UEFA hefur greint frá því að Evrópumótið árið 2024 verði haldið í Þýskalandi. Landið hafði betur gegn Tyrklandi.
Heimsmeistarmótið fór fram í Þýskalandi árið 2006 en þar kunna menn að halda stórmót.
Spilað verður í Berlín, Köln, Dortmund, Dusseldorf, Frankfurt, Gelsenkirchen, Hamborg, Leipzig, München og Stuttgart.
Tyrkland hefur aldrei haldið stórmót en UEFA hafði legið yfir tilboðum frá þessum þjóðum.
Stór ástæða fyrir því að UEFA valdi Þýskaland frekar en Tyrkland er ólga í landinu, en þar er hinn umdeildi, Erdogan, forseti.