Graeme Souness, fyrrum leikmaður Liverpool, er alls enginn aðdáandi miðjumannsins Paul Pogba.
Souness gagnrýnir Pogba nánast í hverri viku en hann fylgist reglulega með Frakkanum.
Hann var í dag spurður út í það hvor væri betri leikmaður, Pogba eða James Milner hjá Liverpool.
,,Það er mjög auðvelt að svara því. Þetta er ekki einu sinni spurning,“ sagði Souness við blaðamenn.
,,Milner alla daga vikunnar. Hann er alvöru leikmaður. Hverjum væri ég frekar til í að mæta? Paul Pogba. Ég vil ekki spila gegn Milner.“
,,Pogba mun ekki stöðva mig ef ég spila gegn honum. Hann mun leyfa mér að vera með boltann og er gagnrýndur fyrir það.“