Jose Mourinho stjóri Manchester United hefur staðfest að Luke Shaw sé leikfær á morgun.
Shaw fékk höfuðhögg um síðustu helgi í landsleik með Englandi.
Óttast var að Shaw myndi missa út einhverja leiki en hann er leikfær.
Bakvörðurinn hefur byrjað frábærlega á þessu tímabili og spilað afar vel í bakverðinum.
Shaw er að finna sitt gamla form en óvíst er hvort hann eða Ashley Young spili á morgun.