Mesut Özil, leikmaður Arsenal, hefur reglulega spilað með liðinu síðustu ár og hefur verið í lykilhlutverki.
Özil hefur oft verið gagnrýndur fyrir það að vera óstöðugur og að hann nenni stundum ekki að reyna á sig í leikjum.
Það er þó ekki hægt að efast um hæfileika leikmannsins sem spilar sinn 200. leik fyrir Arsenal á morgun gegn Newcastle.
Özil spilaði sinn fyrsta leik fyrir Arsenal fyrir nákvæmlega fimm árum en hann kom til liðsins frá Real Madrid.
Það er því við hæfi að skoða tölfræði leikmannsins hjá Arsenal en hann hefur lagt upp 71 mark í 199 leikjum.
Einnig hefur Þjóðverjinn skorað 37 mörk og hefur unnið þrjá bikara á Emirates.