Liverpool 1-3 Dortmund
1-0 Virgil van Dijk
1-1 Christian Pulisic(víti)
1-2 Christian Pulisic
1-3 Jacob Bruun Larsen
Liverpool og Dortmund áttust við í kvöld í æfingaleik en bæði lið undirbúa sig nú fyrir næsta tímabil.
Liðin leika í International Champions Cup en þar munu mörg af stærstu liðum heims spreyta sig.
Dortmund hafði betur í kvöld með þremur mörkum gegn einu og vann sinn annan leik í keppninni eftir 1-0 sigur á Manchester City á dögunum.
Liverpool komst yfir með marki frá Virgil van Dijk áður en Dortmund skoraði þrjú mörk í síðari hálfleik og vann að lokum 3-1 sigur.