Barcelona á Spáni íhugar nú að leggja fram tilboð í markvörðinn Simon Mignolet sem spilar með Liverpool.
Mignolet gæti verið á förum í sumar en eftir komu Alisson frá Roma er Belginn þriðji markvörður liðsins.
Mignolet vill sjálfur fá að spila en hann hefur ekki þótt nógu traustur á milli stanganna á Anfield.
Jasper Cillessen gæti verið að yfirgefa Börsunga í sumar en hann er orðaður við hin ýmsu lið.
Cillessen er varamarkvörður Barcelona og fær lítið að spila en hann var áður aðalmarkvörður Ajax.
Barcelona vill fá Mignolet ef Cillessen fer annað en Marca greinir frá þessu í dag.